Miðvikudagur 12. febrúar 2020 kl. 10:06
Stal Jameson og drakk
Tilkynnt var um þjófnað úr vínbúð í umdæminu til lögreglunnar á Suðurnesjum. Hafði hinn fingralangi haft á brott með sér eins lítra flösku af Jameson viskíi, að andvirði 9000 krónur.
Lögregla hafði upp á manninum og játaði hann sök. Hann kvaðst vera búinn að drekka flöskuna ásamt vinum sínum.