Fréttir

Stal ilmvatni að verðmæti 82 þúsund króna
Föstudagur 8. september 2017 kl. 11:23

Stal ilmvatni að verðmæti 82 þúsund króna

Kona sem lét greipar sópa í tveimur verslunum í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni reyndist hafa í fórum sínum níu ilmvatnsglös að verðmæti samtals rúmlega 82.000 króna sem hún hafði tekið ófrjálsri hendi úr verslununum. Hún var handtekin og færð á lögreglustöð þar sem hún játaði brot sín. Hún framvísaði jafnframt varningnum sem hún hafði hnuplað

Þá var einnig tilkynnt um þjófnað úr vínbúð í umdæminu. Þar hafði karlmaður haft á brott með sér vodkaflösku að verðmæti 5.600 kr. án þess að greiða fyrir hana. Nokkru síðar kom maður inn í verslunina og hnuplaði tveimur vodkaflöskum. Grunur leikur á að sami maðurinn hafði verið á ferðinni.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024