Fréttir

Stal fjórtán kartonum af sígarettum
Þriðjudagur 23. október 2018 kl. 11:21

Stal fjórtán kartonum af sígarettum

Lét greipar sópa í fríhöfninni

Karlmaður var á föstudaginn síðastliðinn staðinn að því að stela fjórtán kartonum af sígarettum úr fríhafnarverslun í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Hann hafði keypt sér flugmiða til London en fór aldrei út úr flugstöðinni heldur lét greipar sópa í fríhöfninni og ætlaði síðan að yfirgefa hana. Í skýrslutöku hjá lögreglunni á Suðurnesjum játaði hann að hann hefði aldrei ætlað að fara um borð í flugvélina heldur komast inn í flugstöðina til að stela sígarettukartonum úr fríhöfninni á 2. hæð.

Maðurinn var vistaður í fangageymslu og tekin ákvörðun um að setja hann síðan í tilkynningarskyldu til 14. desember. Skal hann tilkynna sig til lögreglu þrisvar í viku hverri á umræddu tímabili.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024