Fréttir

Stal ellefu pökkum af kjúklingabringum úr Bónus
Myndin tengist fréttinni ekki alveg beint.
Föstudagur 3. júlí 2015 kl. 18:00

Stal ellefu pökkum af kjúklingabringum úr Bónus

Lögreglumenn á Suðurnesjum handsömuðu síðdegis í fyrradag karlmann á fertugsaldri sem var á sprettinum eftir að hafa stolið 11 pakkningum af kjúklingabringum úr Bónus. Bringunum, að verðmæti rúmlega 23 þúsund krónur,  hafði maðurinn troðið í bakpoka sem hann var með og hljóp svo út úr versluninni. Tveir starfsmenn Bónuss hlupu á eftir honum austur Reykjanesbraut en komst ekki í návígi við hann því þá kastaði hann til þeirra grjóti. Maðurinn henti bakpokanum frá sér á hlaupunum þegar hann varð eftirfararinnar var.   Hann var handtekinn og færður til skýrslutöku á lögreglustöð og sleppt að því búnu.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024