HSS sumarstörf 14-21 mars
HSS sumarstörf 14-21 mars

Fréttir

Stakk af frá umferðaróhappi á Hafnargötu
Þriðjudagur 12. mars 2019 kl. 10:53

Stakk af frá umferðaróhappi á Hafnargötu

Lögreglan á Suðurnesjum óskar eftir vitnum af umferðaróhappi sem varð á Hafnargötu milli gatnamóta Vatnsnesvegar og Faxabrautar klukkan 00:24 í nótt, þann 12. mars.
 
Grunur er um að þarna hafi verið um að ræða Range Rover bifreið. Var bifreiðinni ekið utan í jeppling sem var ekið úr gagnstæðri átt. Brot úr Range Rover fundust vettvangi. Ökumaður „Range Roversins“ nam ekki staðar og ók á brott norður Hafnargötu.
 
Þeir sem urðu vitni að árekstr­in­um eru vin­sam­leg­ast beðnir um að hafa sam­band við lög­regl­una í síma 444-2200 en einnig má senda upp­lýs­ing­ar í einka­skila­boðum á Face­book-síðu lögreglunnar. 
 
„Jafnframt hvetjum við eiganda bifreiðarinnar til þess að setja sig í samband við lögreglu,“ segir á fésbók lögreglunnar á Suðurnesjum sem birtir ljósmynd af sambærilegri bifreið og stakk af úr árekstrinum.
Public deli
Public deli