Stærsti hraðhleðslugarður landsins opnaður við Aðaltorg
Suðurnesin úr neðsta „rafmagnaða“ sætinu í það efsta.
InstaVolt, öflugasta hraðhleðslufyrirtæki Bretlands hefur opnað stærsta hraðhleðslugarð landsins við Aðaltorg í Reykjanesbæ. Alls hafa verið settar upp 20 hleðslustöðvar við Aðaltorg og eru þær knúnar af HS Orku, sem er samstarfsaðili InstaVolt í verkefninu, en HS Orka er þriðji stærsti orkuframleiðandi landsins. Gert er ráð fyrir 200 nýjum InstaVolt hleðslustöðvum víðs vegar um land á næstu tveimur árum.
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku og loftslagsráðherra var við opnunina, 6. júní. „Íslandi hefur tekist vel til í orkuskiptum í samgöngum á landi og er í öðru sæti á eftir Noregi í sölu á rafbílum og tengiltvinnbílum. Eigi Ísland að ná markmiðum ríkisstjórnarinnar um full orkuskipti fyrir árið 2040 verðum við að hraða orkuskiptunum. Fjölgun hraðhleðslustöðva ætti að auðvelda okkur að ná þeim markmiðum okkar,“ sagði ráðherra.
Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku, sagði af sama tilefni: „Við vildum tryggja okkur samstarfsaðila með langa og farsæla reynslu af hraðhleðslumöguleikum og því varð InstaVolt fyrir valinu. Við fögnum komu þeirra á íslenska markaðinn og hlökkum til að taka þátt í enn frekari innviðauppbyggingu með fyrirtækinu vítt og breytt um landið.“
Adrian Pike, stjórnarformaður InstaVolt og jafnframt stjórnarformaður HS Orku, sagði við athöfnina: „Ég er mjög stoltur af þeim áfanga sem InstaVolt og HS Orka hafa náð hér í dag. Framúrskarandi verkefnateymi beggja fyrirtækja hafa skapað tækifæri sem styðja vel við innviðauppbyggingu fyrir rafbílaflota landsins. Samningurinn um verkefnið felur í sér verulegar fjárfestingar hér á landi af hálfu InstaVolt og hann hefur lagt grunninn að einstöku samstarfi sem leiðir til þess að enn fleiri fólksbílar á Íslandi verða knúnir með 100% endurnýjanlegri raforku. Við hlökkum til að fylgja þessu eftir með röð hraðhleðslustöðva vítt og breytt um landið.“
Ingvar Eyfjörð, framkvæmdastjóri Aðaltorgs sagði að með þessu skrefi hefðu Suðurnesin farið úr neðsta sæti í efsta sætið hvað varðar þjónustu við rafbílaeigendur. „Þetta er stór dagur og enn eitt skrefið í að efla þjónustu við Aðaltorg.“