Fréttir

  • Stærsta mötuneyti Íslands laust til umsóknar
  • Stærsta mötuneyti Íslands laust til umsóknar
    Isavia hefur birt auglýsingu þar sem mötuneytið er auglýst.
Þriðjudagur 25. október 2016 kl. 15:14

Stærsta mötuneyti Íslands laust til umsóknar

Isavia hefur auglýst og óskað eftir áhugasömum aðila til að sjá um rekstur mötuneytis fyrir starfsfólk á Keflavíkurflugvelli. Um er að ræða tvö rými til útleigu undir mötuneyti sem allir starfsmenn á Keflavíkurflugvelli hafa aðgang að.

Um 6000 manns starfa í dag á Keflavíkurflugvelli og fer þeim fjölgandi. Innan fárra ára verður Keflavíkurflugvöllur stærsti einstaki vinnustaður á Íslandi.

Isavia gerir kröfu um að ákveðin hæfnisskilyrði verði uppfyllt, þar á meðal að stjórnendur hafi reynslu af veitingarekstri sem nýtist við mötuneytisrekstur og mannaforráð, auk þess að hafa á að skipa starfsmanni sem hafi lokið sveinsprófi í matreiðslu.

Áhugasamir eru hvattir til að senda inn umsókn fyrir 31. október næstkomandi.

Nánari upplýsingar hér.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024