Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Stærri hurð á flugskýli fyrir einn og hálfan milljarð
Flugskýli 831 á Keflavíkurflugvelli. VF-myndir: Hilmar Bragi
Fimmtudagur 21. desember 2017 kl. 06:00

Stærri hurð á flugskýli fyrir einn og hálfan milljarð

- og þvottastöð fyrir kafbátaleitarflugvélar

Síðustu vikur hefur talsvert verið rætt um umsvif Bandaríkjamanna á Keflavíkurflugvelli og fjárveitingu upp á um einn og hálfan milljarð króna sem Bandaríkjaher hefur fengið til að endurnýja flugskýli á Keflavíkurflugvelli. Friðþór Eydal þekkir vel til þessara mála. Er bandaríski herinn að koma aftur?
 
„Ég hef þann starfa hjá ISAVIA að fylgjast með þessum málum og hafa umsjón með þeirri þjónustu sem við erum að veita í þessu sambandi. Þetta er dálítið ofsagt. Það hefur ekkert breyst hjá Bandaríkjamönnum. Þeir vilja og nýta aðstöðu á Íslandi eftir því sem þeim hentar í hagræðingarskyni fyrst og fremst. Eftir að þeir fóru að nota nýjar kafbátaleitarflugvélar þá þurfa þeir að koma oftar á þessar slóðir til þjálfunar. Þá er gott að geta stungið þeim inn í hús og það er það sem stefnt er að varðandi breytingar á flugskýli hérna en þeir eru ekki að koma hingað til að vera með fasta viðveru eða neitt slíkt. Ef þeir týna kafbát einhverntímann svona vestarlega í hafinu þá er þægilegra að leita hans héðan frá Keflavíkurflugvelli heldur en frá Skotlandi, þar sem þeir ætla að vera með meginaðstöðuna á þessu svæði“.
 
Þær framkvæmdir sem bandaríski herinn hefur nú fengið fjárveitingu til er að breyta húsgafli á flugskýli 831 á Keflavíkurflugvelli, þannig að hurðarop verður hækkað þannig að koma megi stéli nýju kafbátaleitarflugvélanna þar inn en stél nýju Poseidon-vélanna er hærra en á gömlu Orion-vélunum. Þá verður einnig reist þvottastöð stil að skola sjó og seltu af vélunum þegar þær hafa komið inn til lendingar.

 
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024