HSS
HSS

Fréttir

Þriðjudagur 18. febrúar 2003 kl. 15:01

Stærðfræðikeppni grunnskólanemenda haldin í sjötta sinn

Á miðvikudaginn í næstu viku eða 26. febrúar, verður hin árlega stærðfræðikeppni grunnskólanemenda haldin í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Þetta verður í sjötta sinn sem þessi keppni er haldin í FS en hún er haldin í samvinnu við Flensborgarskólann í Hafnafirði og þaðan koma dæmin. Keppnin sem hefst kl. 14:15 er ætluð nemendum 8., 9. og 10. bekkjar en nemendur geta komið á bilinu frá kl.14:05 til 14:30.Íslandsbanki í Keflavík mun sem áður veita peningaverðlaun þeim þremur keppendum sem ná bestum árangri í hverjum árgangi.
Einnig ætlar Verkfræðistofa Suðurnesja að gefa þeim keppendum sem lenda í þrem efstu sætunum í 10. bekk grafiskan vasareikni.
Undanfarin ár hefur verið vaxandi áhugi fyrir þessari keppni og síðast tóku 120 nemendur þátt í henni. Það er gott að hafa í huga að þetta er ekki próf heldur þrautir og skemmtileg dæmi sem nemendur þurfa að glíma við og ættu að höfða til allra. Það er von okkar í FS að nú verði met þátttaka og allir hafi gaman að þessu. Við munum síðan bjóða til smá veislu og veita viðurkenningu þeim keppendum, ásamt forráðamönnum, sem lenda í 10. efstu sætunum í hverjum árgangi um leið og verðlaunaafhendingin fer fram.
Bílakjarninn
Bílakjarninn