Stækkun brottfararsals Leifsstöðvar gengur vel
Unnið er við að setja upp sperrur við Suðurenda Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar, en unnið hefur verið að stækkun brottfararsalsins frá því í febrúar. Salurinn verður stækkaður með járngrindarvirki og gleri sem framleitt er í Danmörku. Gert er ráð fyrir að framkvæmdum ljúki í lok maí.
Að sögn Gísla Kristóferssonar verkstjóra hjá Ístak hafa framkvæmdir gengið vel. „Allt grindarvirkið ásamt glerinu er komið til landsins. Við búumst við að fara að setja glerið í grindina í næstu viku,“ segir Gísli.
Einnig er verið að malbika planið fyrir framan brottfararsalinn. Vinna við stækkun austurenda flugstöðvarinnar hefst í haust.
Myndin: Unnið við uppsetningu sperra við Flugstöð Leifs Eiríkssonar í morgun. VF-ljósmynd/Jóhannes Kr. Kristjánsson.