Fréttir

Stækka Gefnarborg fyrir 118 milljónir króna
Leikskólinn Gefnarborg. VF-mynd: Hilmar Bragi
Þriðjudagur 27. nóvember 2018 kl. 07:17

Stækka Gefnarborg fyrir 118 milljónir króna

Bæjarráð sameinaðs sveitarfélags Garðs og Sandgerðis hefur samþykkt framkvæmdir við stækkun leikskólans Gefnarborgar í Garði, en samkvæmt kostnaðaráætlun er byggingarkostnaður áætlaður rúmar 118 milljónir króna. 
 
Í fjárhagsáætlun 2018 er fjárheimild til verksins að fjárhægð kr. 50.000.000 en um fjárheimild umfram þá fjárhæð er vísað til vinnslu fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins 2019-2022, segir í afgreiðslu bæjarráðs.
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024