Stækka flugstöðina um 4800 fermetra í sumar
Ríkiskaup hafa auglýst eftir umsóknum um þátttöku í forvali vegna stækkunar suðurbyggingar Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar til vesturs.
Um er að ræða 4.800 fermetra viðbyggingu, tvær hæðir auk kjallara, og gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist í lok maí nk.
Með þessari breytingu mun flugstæðum fjölga úr 14 í 19. Afköst Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar munu því aukast töluvert við breytinguna.