Bygg
Bygg

Fréttir

Staðfesta að kvikuinnskot er að myndast á 4-5 km dýpi
Svona eru síðustu sjö sólarhringar af jarðskjálftum við Grindavík. Mynd úr Skjálfta-lísu Veðurstofu Íslands.
Fimmtudagur 2. nóvember 2023 kl. 13:04

Staðfesta að kvikuinnskot er að myndast á 4-5 km dýpi

GPS gögn frá síðasta sólarhring benda til þess að landris haldi áfram á svipuðum hraða á svæðinu norðvestan við Þorbjörn. Jarðskjálftavirkni hefur verið nokkuð stöðug en í gær mældust um 800 jarðskjálftar á svæðinu í kringum Þorbjörn og var stærsti skjálftinn 3,7 að stærð kl. 00:56. Frá miðnætti í dag hafa um 400 jarðskjálftar mælst á svæðinu, sá stærsti 2,8 að stærð kl. 9:51.

Veðurstofa Íslands segir í tilkynningu ítarlegri greiningu á nýlegum gervitungla- og GPS-gögnum staðfesta að kvikuinnskot er að myndast á 4-5 km dýpi undir svæðinu norðvestan við Þorbjörn.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Minnt er á að gera má ráð fyrir að jarðskjálftavirkni haldi áfram norðvestan við Þorbjörn og skjálftar yfir 4 að stærð gætu fundist í byggð. Einnig má gera ráð fyrir gikkskjálftavirkni á næstu dögum vegna þess að kvikuinnskotið veldur aukinni spennu á svæðinu. Grjóthrun getur orðið í kjölfar öflugra skjálfta, því skal fara með varúð við brattar hlíðar.