Staðan hefur bæði lagast og versnað
Suðurnesjavaktina skipar samstarfshópur, sem er fjölbreyttur hópur lykilfólks á Suðurnesjum þar á meðal allir félagsmálastjórar svæðisins, fulltrúar frá verkalýðshreyfingunni og Rauða krossinum og fulltrúar sex ríkisstofnana, fulltrúi kirkjunnar og skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Suðurnesjavaktin er óháður greiningar- og álitsgjafi sem leggur fram tillögur til stjórnvalda og hagsmunasamtaka og fylgir þeim eftir. Verkefnisstjóri Suðurnesjavaktarinnar er Lovísa Lilliendahl. Hún svaraði nokkrum spurningum blaðsins.
Getur þú sagt mér í stuttu máli hver munurinn er á milli þeirra tveggja áfangaskýrsla sem gerðar hafa verið um Suðurnes. Hverjar eru breytingarnar á „ástandinu“ á svæðinu?
Fyrri áfangaskýrsla Suðurnesjavaktarinnar kom út í júní 2011 en sú síðari kom út í júní síðastliðnum. Frá því að fyrri áfangaskýrslan kom út má segja að staðan hafi bæði lagast og versnað. Ef við byrjum á atvinnumálunum þá hefur dregið meira úr atvinnuleysi á Suðurnesjum en á öðrum landssvæðum en hér er hlutfall atvinnuleysis samt sem áður langhæst. Í nýju skýrslunni sjáum við áfram að það eru margir sem eiga í miklum fjárhagserfiðleikum. Hér á svæðinu er sem dæmi hæst hlutfall heimila í vanskilum, nauðungarsölum hefur farið fjölgandi og fleiri einstaklingar virðast telja einu leiðina að fara í gjaldþrot. Eignir í eigu Íbúðalánasjóðs eru langflestar hérna á Suðurnesjum miðað við aðra landshluta eða samtals 579. Til samanburðar eru eignir sjóðsins á höfuðborgarsvæðinu samtals 352. Á sama tíma árið 2011 voru eignir sjóðsins á Suðurnesjum samtals 309 þannig að við erum að sjá gríðarlega aukningu á milli ára. Þá er mikið álag á félagsþjónustur á svæðinu en hjá félagsþjónustunni í Reykjanesbæ hafa framlög til fjárhagsaðstoðar farið langt fram úr áætlun. Fjárhagslegir og félagslegir erfiðleikar gera vart við sig um allt land en því miður skera Suðurnesin sig úr að svo mörgu leyti. Það sem við teljum til jákvæðra breytinga er að með tilkomu atvinnuþróunarfélagsins Heklunnar hefur tækifærum fjölgað fyrir einstaklinga sem hafa áhuga á að fara út í frumkvöðlastarfsemi en nýjum sprotafyrirtækjum á Ásbrúarsvæðinu hefur fjölgað á undanförnum mánuðum og eru nú orðin í kringum tuttugu talsins.
Hvernig metið þið stöðuna á Suðurnesjum í framhaldi af nýjustu áfangaskýrslunni?
Staðan er ekki góð eins og við höfum öll orðið vör við. Stærsta vandmálið á svæðinu er þetta mikla atvinnuleysi því það hefur keðjuverkandi áhrif ef svo má segja. Við erum að glíma við langtímaatvinnuleysi og það er engum hollt að þurfa að upplifa að vera í þeirri stöðu. Álag hefur aukist hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og einstaklingar eru farnir að glíma við þyngri og erfiðari vandamál og þurfa meiri stuðning og eftirfylgni.
Við í Suðurnesjavaktinni höfum þó einnig viljað leggja áherslu á það jákvæða sem er að gerast á svæðinu en svæðið býr yfir mörgum styrkleikum eins og fram kemur í skýrslunni. Undanfarin tvö ár hefur verið gripið til fjölmargra aðgerða að hálfu stjórnvalda til þess að styðja við svæðið meðal annars með formlegu samstarfi Suðurnesjavaktarinnar á sviði velferðarmála, verkefnisstjórar á vegum menntamálaráðuneytisins hafa unnið að því að efla menntun á svæðinu og atvinnuþróunarfélagið Heklan var stofnað. Hér á svæðinu eru einnig í boði fjölmörg virkni- og starfsendurhæfingarúrræði og atvinnu- og námstækifærum hefur fjölgað með úrræðum á borð við Atvinnutorg, Vinnandi vegur og Nám er vinnandi vegur þannig að flestir ættu að geta fundið úrræði við sitt hæfi. Það er hins vegar nauðsynlegt að fleiri einstaklingar sem á þurfa að halda sæki þessi úrræði.
Á hvað ber helst að leggja áherslu á á Suðurnesjum m.v. niðurstöðu skýrslunnar?
Við teljum mikilvægt að þeir einstaklingar sem eiga í hvað mestum erfiðleikum sæki sér aðstoð fyrr en síðar og fái þann stuðning sem þeir þurfa. Það skiptir svo miklu máli sérstaklega fyrir atvinnuleitendur að halda sér í virkni þar til vinnan býðst, sem hún mun á endanum gera. Það þarf að styðja betur við atvinnustarfsemi á svæðinu og búa vel í haginn fyrir stofnun nýrra fyrirtækja. Í skýrslunni kemur einnig fram að menntunarstig einstaklinga á Suðurnesjum er lægra en annars staðar á landinu. Í nýlegri könnun Capacent Gallup kom fram að viðhorf til menntunar á Suðurnesjum er mjög jákvætt og við þurfum að vera duglegri að nýta okkur námstækifærin og það er einnig hlutverk okkar foreldranna að hvetja börnin okkar til frekara náms. Það er einnig mikilvægt að starfsfólk í velferðarþjónustu fái góðan stuðning og sé í góðum tengslum við hvert annað því það gerir vinnuna auðveldari og fólkið nýtur góðs af. Suðurnesjavaktin stóð meðal annars fyrir starfsdegi fyrir fólk í velferðarþjónustu á síðasta ári sem tókst einstaklega vel og þar kom vel í ljós hve frábært starfsfólk við höfum hérna á svæðinu við að sinna þessum málum. Þannig að við teljum að það þurfi að hlúa vel að mannauðnum á svæðinu á meðan við göngum í gegnum þetta erfiða tímabil.
Hvert er starf Suðurnesjavaktarinnar? Hversu oft kemur þessi hópur saman?
Suðurnesjavaktin var sett á laggirnar í lok árs 2010 að ósk heimamanna til þess að efla og styrkja samstarf á sviði velferðarmála þvert á öll sveitarfélögin á svæðinu. Suðurnesjavaktin er hluti af starfsemi velferðarvaktarinnar sem starfar á vegum velferðarráðuneytisins. Í Suðurnesjavaktinni eru fulltrúar lykilaðila í velferðarmálum á svæðinu. Þar sitja allir félagsmálastjórarnir, fulltrúar frá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, Vinnumálastofnun, mörgum menntastofnunum, kirkjunni, stéttarfélögum, Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum, Sýslumanninum í Keflavík, Umboðsmanni skuldara, Íbúðalánasjóði og Rauða krossinum. Við hittumst mánaðarlega og leggjum áherslu á að kortleggja svæðið vel og að hafa ávallt uppfærðar tölulegar upplýsingar sem og aðrar upplýsingar um stöðuna á svæðinu sem við höfum svo meðal annars notað við gerð áfangaskýrslnanna. Suðurnesjavaktin tók einnig saman bækling um úrræði og athafnir sem eru í boði á svæðinu á sviði velferðarmála og hefur nýst vel í þjónustu við einstaklinga og leitt til nánara samstarfs. Við höfum hvatt til samstarfs um tiltekin verkefni en þar má til dæmis nefna samstarf fulltrúa foreldrafélaga á öllu svæðinu.
Hvert er framhaldið hjá Suðurnesjavaktinni. Verður því starfi haldið áfram næstu ár?
Suðurnesjavaktin mun starfa að minnsta kosti til áramóta en það mun koma í ljós á næstunni hvort eða með hvaða hætti samstarfið heldur áfram á komandi ári.