Staðan getur breyst og virknin þróast með skömmum fyrirvara
Öflug jarðskjálftahrina hófst í nótt skammt norðan við Grindavík. Yfir eitt þúsund jarðskjálftar hafa mælst á svæðinu frá miðnætti og heldur virknin enn áfram. Tveir stærstu skjálftarnir voru 3,9 að stærð kl. 5:35 og 4,5 að stærð kl. 8:18. Báðir skjálftarnir urðu á um 5 km dýpi.
Veðurstofa Íslands segir nýjustu aflögunargögn frá nokkrum mælistöðvum nærri Grindavík sýni ekki markverðar breytingar tengdar þessarri skjálftahrinu. Miðað við aðgengileg gögn er líklegast að skjálftavirknin sé afleiðing spennubreytinga vegna aflögunar á Reykjanesskaga síðustu ár.
Óvíst er að um sé að ræða kvikuinnskot undir svæðinu við Þorbjörn nærri Grindavík, en staðan getur breyst hvenær sem er og virknin þróast með skömmum fyrirvara, frá klukkustundum til daga. En eins og áður hefur verið fjallað um er landris í gangi á svæðinu í kringum Fagradalsfjall, sjá nýlega frétt.
Starfsfólk Veðurstofunnar heldur áfram að vakta svæðið mjög náið og túlka nýjustu gögn þegar þau berast.
Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum hefur lýst yfir óvissustigi Almannavarna vegna jarðskjálftahrinunnar