Staðan á hitaveitu og rafmagni í Grindavík
Starfsfólki HS Veitna hefur gengið vel síðustu daga að koma á hita og rafmagni í hús sem urðu rafmagns- og heitavatnslaus í þeim náttúruhamförum sem hafa riðið yfir Grindavík og á vef HS Veitna kemur fram staða mála eins og hún er í bænum í dag (eftir bestu upplýsingum HS Veitna):
Staða hitaveitunnar er þannig að af 1.200 heimilum eru þrjú hús heitavatnslaus vegna skemmda á dreifikerfinu. Hins vegar virðast 54 hús ekki vera að nota heitt vatn þó þau séu að fá heitt vatn til sín. Ástæðan getur verið af ýmsum toga sem tengist fasteignunum sjálfum. Mun pípulagningasveit á vegum Almannavarna kanna aðstæður í þessum húsum á næstu dögum í samráði við húseigendur.
Hvað rafmagnið varðar er staðan sú að fimm hús eru rafmagnslaus vegna skemmda í dreifikerfinu. Hins vegar virðast 31 hús ekki vera að nota rafmagn þó þau fái rafmagn til sín. Ástæður þess geta verið af ýmsum toga sem tengjast fasteignunum sjálfum. Mun rafvirkjasveit á vegum Almannavarna kanna aðstæður í þessum húsum á næstu dögum í samráði við húseigendur.
Umræddar upplýsingar eru byggðar á þeim gögnum sem fyrir liggja á þessum tíma en í ljósi aðstæðna er ekki hægt að tryggja fullkomna vissu stöðu einstakra húsa né fulla mynd af stöðunni í Grindavík.
Í ljósi þess að jarðsig og gliðnun halda áfram í Grindavík er ómögulegt að segja hvert framhaldið verður. Sérstaklega er varað við hættu sem skapast af heitu vatni á yfirborði eða í skurðum og vegna laskaðra raforkumannvirkja og strengja.
Frá þessu er greint á vef HS Veitna í dag.