Bygg
Bygg

Fréttir

Staða unglinga góð - en vilja fjölbreyttara tómstundastarf og bættar samgöngur
Fimmtudagur 20. október 2011 kl. 10:20

Staða unglinga góð - en vilja fjölbreyttara tómstundastarf og bættar samgöngur

- Málþingið „Hærra, ég og þú“ fyrir ungt fólk á Suðurnesjum


Staða unglinga á Suðurnesjum er að mörgu leyti góð en staða heimila oft slæm og ungmenni þurfa að styðja heimili sín og vinna með skóla eða hætta í skóla til að vinna,ef vinnu er að fá. Flestir unglingar eru í námi en margir sem hafa viljað hætta í skóla og hafa reynt að fá sér vinnu- eru nú atvinnulausir. Slíkt leiðir af sér aðgerðarleysi sem leiðir til verri stöðu eins og t.d. neyslu fíkniefna og vonleysi. Þetta kemur fram í niðurstöðum ungs fólks sem tók þátt í málþingi ungs fólks sem haldið var í Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 6. október sl. undir yfirskriftinni „Hærra, ég og þú“. Málþingið er hluti af verkefninu Energí og trú sem Keflavíkurkirkja stendur fyrir og er styrkt af m.a. Kjalarnesprófastsdæmi og Biskupsstofu. Málþingið sjálft var styrkt af Evrópu unga fólksins. Þátttakendur voru 22 ungmenni af Suðurnesjum á aldrinum 15-22 ára auk fyrirlesara og starfsmanna.

Málþingið hófst á fyrirlestri Loga Geirssonar fyrrum atvinnumanns í handbolta þar sem hann ræddi um gildi þess að setja sér markmið og hafa trú á sér í öllum aðstæðum. Jenný Þórkatla Magnúsdóttir, starfs- og námsráðgjafi hjá MSS og sagði frá verkefninu Fjörefni og hvað það hefur gert fyrir ungt fólk á Suðurnesjum, hvernig það hefur öðlast sjálfstraust og farið út á vinnumarkaðinn.

Þorsteinn Valdimarsson frá Change-makers eða Breytendum kom og sagði frá starfi samtakanna og gaf góð ráð ef þátttakendur vildu fara af stað með slíkt á Suðurnesjum. Einnig heimfærði hann hluta efnisins á heimabyggðina.

Að lokum kom Sigrún Sævarsdóttir Griffiths og sagði frá því sem hún hefur verið að vinna við í Guildhall tónlistarskólanum í London. Þá var lesið bréf frá ungum manni sem er búsettur í Reykjanesbæ. Hann sagði sögu sína, hvernig líf hans hafði verið án tilgangs og markmiða og í það að hætta í fíkniefnum og snúa lífi sínu til hins betra.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Þátttakendur voru spurðir spurningarinnar „Hvernig metið þið stöðu ungs fólks á Suðurnesjum í dag?“


Tillaga þeirra var m.a. að stofna vinnumiðlun fyrir skólafólk sem hefur hlutastörf eins og t.d. slátt í görðum á sumrin o.s.frv.


„Það er mjög erfitt fyrir ungmenni að komast á milli staða þar sem samgöngur hérna eru slæmar. Strætó gengur mjög stopult yfir daginn og ekkert á kvöldin. Það er því ómögulegt að nýta strætisvagnana sem skyldi og þurfa margir að hætta í íþróttum og tómstundum þar sem ekki allir foreldrar geta sótt og skutlað,“ segir m.a. í niðurstöðum ungmennanna frá málþinginu.


Þá finnst þeim óþægilegt þegar það virðist sem það sé mismunandi undirbúningur grunnskólanna fyrir framhaldsnám. Þetta skapar ríg og óþarfa togstreitu milli hverfa og skóla, segir í niðurstöðum.


„Hér vantar fjölbreytni í tómstundastarf fyrir ungmenni. Hér er nóg af íþróttum og kristilegu starfi en vantar fleira. Spennandi að stofna t.d. Change makers hér. Einnig ætti að nýta fólk og starf staðarins til að setja t.d. af stað leikhóp sem vinnur að forvörnum með uppsetningu leikrita og fyrirlestra. Hér vantar hlutlausan, jákvæðan stað þar sem forvarnir eru og stuðlar að heilbrigðu líferni. Ekki allir unglingar vilja sækja starf með kristilegum formerkjum,“ segja ungmennin.


„Okkur finnst foreldrar hérna á Suðurnesjum ekki sýna nógu mikið aðhald við unglinga. Hér er mikill jafningjaþrýstingur og því nauðsynlegt að bæði foreldrar, skólar og aðrir haldi betur utan um unglingana,“ sögðu ungmennin í niðurstöðum sínum.


Og um möguleika til menntunar sögðu þau: „Þar sem FS fullsetinn- og því erfitt að komast í það nám sem maður vill (þó svo að skólinn sé allur af vilja gerður) þá vantar fleiri úrræði fyrir framhaldsskólanema. Að okkar mati væri góður kostur að stofna heimavist í Reykjavík fyrir þá sem héðan koma og vilja sækja nám í Reykjavík eða hafa tíðari ferðir á milli Rvíkur og Reykjanesbæjar“.



Spurningunni „Hvaða tækifæri hefur ungt fólk á Suðurnesjum til þess að vinna sjálft að því að efla möguleika sína?“ var svarað svona:


„Ungt fólk getur sótt það tómstundastarf sem er í boði og m.a. gengið í björgunarsveitina og lært hvernig brugðist skal við á ögurstundu, gengið í KFUM og K og fara á leiðtoganámskeið sem nýtast á ótal vegu í lífi og starfi.


Við ættum að sækja starsfnám og þjálfun þar sem hún er í boði (MSS, Keflavíkurkirkja o.fl.) Hafa skal í huga að allt nám er mikilvægt, líka óhefðbundið nám, óformleg menntun og námskeið. Allt leiðir þetta til þess að við fáum meiri færni og þekkingu. Við þurfum líka að leggja okkur fram við að standa okkur vel í skóla. Góð menntun leiðir frekar af sér betri tækifæri.


Það er nauðsynlegt fyrir okkur að setja okkur framtíðarmarkmið og fylgja þeim.


Samtök á borð við Change makers væri gaman að setja á stofn hér á Suðurnesjum og fá ungt fólk til að hugsa út fyrir kassann“.




Að endingu var spurt: Hvernig sjáið þið stöðu ungs fólks á Suðurnesum eftir fimm ár?


„Til þess að ungt fólk geti séð framtíðina hér á Suðurnesjum þarf margt að breytast. Við sjáum fyrir okkur á næstu fimm árum að skólarnir okkar verða betri og betri. Þeir eru stöðugt í þróun og við skorum hærra á landsmeðaltali sem vekur gott umtal og við verðum ánægðari með þá og stolt af því að tilheyra þeim.


Við sjáum fyrir okkur að Change makers verði komið hingað og það starfi leiði gott af sér bæði fyrir samfélagið okkar og víðar í heiminum.


Við sjáum fyrir okkur að strætókerfið verði betra þannig að fjölskyldum sé gert auðveldara fyrir að nota ódýrar samgöngur.


Við sjáum fyrir okkur að íþrótta- og tómstundastarf verði opið öllum á jöfnum grundvelli óháð heimilistekjum og að viðráðanlegt fast gjald sé greitt til ungmennafélaga/tómstundafélaga bæjarins til að greiða fyrir aðgengi allra, óháð tekjum heimila“.