Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Staða og framtíð Suðurnesja skoðuð í ljósi breytinga á íbúaþróun
Vegna stækkunar Hlíðarhverfis í Reykjanesbæ verður 120 barna leikskóli fyrir börn frá tólf mánaða aldri reistur í hverfinu.
Þriðjudagur 4. apríl 2023 kl. 06:44

Staða og framtíð Suðurnesja skoðuð í ljósi breytinga á íbúaþróun

Í ljósi þess að umfangsmiklar breytingar hafa orðið á íbúaþróun á Suðurnesjum á undanförnum árum og munu verða það áfram er mikilvægt að einstök sveitarfélög og samtök þeirra hafi yfirlit yfir þær og hvers megi vænta á næstu árum.

Þetta kom fram á fundi Heklunnar, atvinnuþróunarfélags Suðurnesja, og Markaðsstofu Reykjaness sem haldinn var nýverið. Þar var farið yfir stöðu og framtíð Suðurnesja með sviðsmyndagreiningu og tekjuþróun. Þessar breytingar hafa nú þegar haft áhrif á tekjustofna sveitarfélaganna sem og þjónustuþarfir og munu gera það áfram. Áhrifin og væntanleg framvinda eru mismunandi eftir sveitarfélögum þótt þær séu um margt keimlíkar.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Framundan á Suðurnesjum er að afla gagna og greina um íbúaþróun og mikilvæga þætti hennar bæði á undanförnum árum og til þriggja til fimm ára framtíðar. Eftir því sem tök eru á verður gerð grein fyrir íbúaframvindu til lengri tíma.

Að afla gagna og greina um þróun atvinnulífs á Suðurnesjum og tengja þau íbúaþróun annars vegar og þróun tekjustofna sveitarfélaganna hins vegar.

Að greina gögn um samhengi íbúaþróunar undanfarinna ára og helstu tekjustofna sveitarfélaganna á Suðurnesjum. Á grundvelli þessara gagna verður gerð grein fyrir líklegri framvindu tekna þeirra á næstu árum.

Að greina samhengi íbúaþróunar og vænta þróun helstu þjónustuþátta sveitarfélaganna. Hér er um að ræða þörf fyrir leikskóla, grunnskóla, þjónustu við fatlað fólk og aldraða ásamt öðrum þjónustuþáttum sveitarfélaganna.

Framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum mun óska eftir því að kynna niðurstöðurnar í bæjarráðum allra sveitarfélaganna á Suðurnesjum þegar þær liggja fyrir, segir í fundargerð Heklunnar.