Bygg
Bygg

Fréttir

SSS stofnar nefnd til að fjalla um sameiningu
Föstudagur 12. nóvember 2004 kl. 17:22

SSS stofnar nefnd til að fjalla um sameiningu

Á næstunni verður stofnuð nefnd á vegum Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum sem mun fjalla um málefni tengd sameiningu sveitarfélaga og meta gildi samstarfsins fyrir sveitarfélögin á Suðurnesjum bæði gjaldalega, tekjulega, stjórnsýslulega og félagslega.

Tillaga þess efnis var lögð fram  á stjórnarfundi SSS í morgun, en flutningsmenn voru fulltrúar fulltrúar Sandgerðis, Grindavíkur, Garðs og Vatnsleysustrandarhrepps.

Gert er ráð fyrir að nefndin verði skipuð 7 mönnum, þremur frá Reykjanesbæ og einum frá hverju hinna sveitarfélaganna og vinni út frá skýrslu sem Reykjanesbær lét vinna fyrir sig. SSS mun óska eftir því að sveitarfélögin tilnefni fulltrúa sem fyrst og nefndin verði kölluð saman til fyrsta fundar þegar tilnefningar liggja fyrir.

Í skýrslunni kemur meðal annars fram hugmynd um að leggja SSS niður í núverandi mynd og að rekstur einstakra stofnana þess verði annaðhvort tekinn yfir af Reykjanesbæ eða stofnað hlutafélag um rekstur þeirra.

Þar kom einnig fram sú hugmynd að gera Sorpeyðingarstöð Suðurnesja, Kölku, að hlutafélagi og var samþykkt á fundinum í morgun að gerð verði athugun á kostum þess og var Guðjóni Guðmundssyni, framkvæmdastjóra SSS falið að vinna úttektina.
Bílakjarninn
Bílakjarninn