Bygg
Bygg

Fréttir

SSS: Skorar á ráðherra og Fjárlaganefnd að standa við viljayfirlýsingu um uppbyggingu og framtíðarsýn HSS
Þriðjudagur 22. nóvember 2005 kl. 14:13

SSS: Skorar á ráðherra og Fjárlaganefnd að standa við viljayfirlýsingu um uppbyggingu og framtíðarsýn HSS

Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum haldinn í Reykjanesbæ 19. nóvember 2005 skorar á Heilbrigðisráðherra og Fjárlaganefnd Alþingis að standa við viljayfirlýsingu, um uppbyggingu og framtíðarsýn Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, sem undirrituð var þann 1. júní 2004.

Áform um uppbyggingu hafa ekki gengið eftir vegna skorts á fjárveitingum og nauðsynlegt að nú þegar verði gripið til aðgerða til að unnt sé að ljúka framkvæmdum innan þess tíma sem yfirlýsingin gerði ráð fyrir. Uppbygging aðstöðunnar er veigamikill hluti þeirrar framtíðarsýnar sem unnið er eftir og mikilvægt að 3. hæð D-álmu verði tekin í notkun sem fyrst.

Jafnframt er mikilvægt að staðið verði við áform um uppbyggingu hjúkrunarrýma fyrir aldraða í samræmi við samkomlag milli Heilbrigðisráðuneytisins og sveitarfélaganna á Suðurnesjum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn