Bygg
Bygg

Fréttir

SSS: Ályktað um löggæslumálin að venju
Mánudagur 13. október 2008 kl. 13:52

SSS: Ályktað um löggæslumálin að venju

Á aðalfundi SSS er það orðinn fastur liður að álykta um löggæslumál á svæðinu enda hefur jafnan verið lítið um efndir ríkisvaldsins í þeim málaflokki. Að venju var ályktað um löggæslumálin á aðalfundi SSS um helgina. Í ályktuninni er farið fram á að lögreglan hafi sama fjölda löggæslumanna og var fyrir sameiningu embættanna og leyst verði úr brýnum húsnæðisvanda lögreglunnar.

Í nóvember í fyrra talaði Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, um það á Alþingi hve brýnt væri orðið að leysa húsnæðisvanda lögreglunnar á Suðurnesjum. Þá taldi Björn „vel koma til greina að nýtt húsnæði verði byggt í einkaframkvæmd og því hraðað eins og kostur er til að komast að niðurstöðu í málinu."
Síðan þá hefur nákvæmlega ekkert gerst til að leysa húsnæðisvandann.

Annars er ályktun SSS svohljóðandi:

„Aðalfundur SSS haldinn í Sveitarfélaginu Garði 11. október 2008 telur mjög mikilvægt að treystur verði rekstrargrundvöllur löggæslu á Suðurnesjum þannig að embættið hafi styrk til að sinna sem skyldi þjónustu og lögregluverkefnum á svæðinu. Verkefnin hafa stóraukist á undanförnum árum vegna fjölgunar íbúa á Suðurnesjum og auknum umsvifum á Keflavíkurflugvelli.  Algjört skilyrði er að rekstrargrundvöllurinn sé þannig að lögreglan hafi a.m.k. sama fjölda lögreglumanna og var fyrir sameiningu lögreglunnar á Keflavíkurflugvelli og lögreglunnar í Keflavík, en í dag vantar mikið upp á að svo sé. 
Fundurinn leggur áherslu á að undirbúningur að byggingu húsnæðis fyrir aðalstöðvar lögreglunnar á Suðurnesjum verði flýtt og bygging þess verði að fullu lokið eigi síðar en árið 2010. Þar með verði starfssemin komin undir eitt þak en húsnæðismálin nú eru í miklum ólestri.
Lögð er áhersla á að áform um aukið forvarnarstarf lögreglu í Garði, Sandgerði og Vogum verði að veruleika sem fyrst.  Þá treystir fundurinn því að fyrirhuguðar  breytingar á embættinu komi ekki niður á gæðum þjónustunnar og að samráð verði haft við sveitarfélögin á Suðurnesjum um bætta þjónustu.“


Mynd: Ekkert bólar á lausnum við húsnæðisvanda lögreglunnar þrátt fyrir fögur fyrirheit Björns Bjarnasonar á síðasta þingi. Lögreglan þarf að mæta vandanum m.a. með lausum skrifstofugámum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn