Bragi Guðmundsson - Báruklöpp
Bragi Guðmundsson - Báruklöpp

Fréttir

Sr. Sigfús látinn
Sr. Sigfús Baldvin Ingvason er látinn sextugur að aldri.
Mánudagur 6. nóvember 2023 kl. 23:33

Sr. Sigfús látinn

Sr. Sigfús Baldvin Ingvason er látinn sextugur að aldri. Frá þessu er greint á kirkjan.is í dag. Sigfús fæddist á Akureyri þann 10. apríl árið 1963. Foreldrar hans eru Ingvi Svavar Þórðarson og Ásgerður Snorradóttir.

Sigfús varð stúdent frá Verkmenntaskólanum á Akureyri árið 1986 og cand. theol. frá Háskóla íslands 1. febrúar árið 1992.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Hann hafði umsjón með sunnudagaskóla í Digranessókn og sá um barna- og æslulýðsstarf KFUM og KFUK.

Hann var starfsmaður Kristilegra skólasamtaka og forstöðumaður sumarbúða KFUM og KFUK á Hólavatni.

Hann var fræðari á fermingarnámskeiðum í Skálholti og hafði umsjón með félagsstarfi fatlaðra í Reykjavík.

Hann var æskulýðsfulltrúi í Fella- og Hólakirkju.

Sr. Sigfús var vígður þann 15. ágúst árið 1993 til Keflavíkurkirkju.

Hann leysti af sem sóknarprestur í Útskálasókn í Kjalarnesprófastsdæmi árið 1995-1996.

Hann baðst lausnar frá embætti þann 1. ágúst árið 2015 af heilsufarsástæðum.

Eftirlifandi eiginkona sr. Sigfúsar er Laufey Gísladóttir.

Dætur þeirra eru Birta Rut Tiasha og Hanna Björk Atreye.

Dubliner
Dubliner