Spúðu eldi á baðfötum í saltgeymslu
Lögreglan á Suðurnesjum var nýverið í eftirlitsferð í umdæminu sem ekki er í frásögur færandi nema að þegar lögreglumönnum var litið inn í saltgeymslurnar að Víkurbraut sáu þeir að þar blossaði upp eldur við og við. Þegar þeir athuguðu málið nánar sáu þeir nokkra aðila klædda baðfatnaði og einnig ljósmyndara sem var að taka myndir af þeim. Út úr þeim stólu eldtungur við og við og kváðust þau vera að spúa eldi. Í ljós kom að viðkomandi væru að taka myndir fyrir fyrirtæki sitt í auglýsingaskyni.
Þeim var sagt að ekki gæti talist eðlilegt að fara inn í byggingar, þótt yfirgefnar væru, til að stunda iðju sem þessa án leyfis. Kváðust þau ætla að afla sér leyfis ef þau teldu sig þurfa að spúa meiri eldi.