Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl

Fréttir

Sprungur myndast í Grindavíkurvegi
Sprungur hafa myndast í nýrri viðgerð á Grindavíkurvegi. Ljósmyndir: Vegagerðin
Fimmtudagur 28. desember 2023 kl. 14:40

Sprungur myndast í Grindavíkurvegi

Skemmdir í nýrri viðgerð nærri Svartsengi

Landrissins í Svartsengi gætir á Grindavíkurvegi. Þar hafa sprungur myndast og breikkað nokkuð frá í gær, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Sprungur hafa myndast nær Grindavík en áður en auk þess eru farnar að myndast sprungur á þeim stað sem búið var að gera við nærri þeim stað þar sem landrisið á sér nú stað.

Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl

Eftirlitsmaður Vegagerðarinnar segist finna talsverðan mun á veginum í dag miðað við í gær, miðvikudag.

Ekki er þörf á að loka veginum en Vegagerðin fylgist grannt með þróun mála í góðri samvinnu við lögreglu og Almannavarnir.

Sprungurnar eru mjög áberandi á Grindavíkurveginum.



Hér má sjá sprungu þvera veginn nærri Grindavík. Myndir: Vegagerðin

Reykjanes Optikk ljósan25
Reykjanes Optikk ljósan25