Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Sprunga myndaðist í Suðurstrandavegi
Laugardagur 27. febrúar 2021 kl. 13:58

Sprunga myndaðist í Suðurstrandavegi

Engin hætta á ferðum en vegfarendur hvattir til að fara varlega

Eftirlitsmenn Vegagerðarinnar urðu snemma í morgun varir við sprungur í Suðurstrandarvegi (427)  um 1,3 km vestan við Vigdísarvallaveg. Fyrir kl. 11 á laugardag var búið er að aka alla vegi á svæðinu og fleiri sprungur sáust ekki. Vegagerðin hefur fylgst grannt með síðan þessi jarðskjálfrahrina hófst, segir á vef Vegagerðarinnar.

Svo sem sjá má á myndunum eru skemmdirnar ekki miklar og sprungan ekki stór og því ekki ástæða til að loka veginum. Eigi að síður nær sprungan yfir allan veginn. Skemmdir verða skoðaðar nánar og gert við veginn eins fljótt og kostur er.

Verið er að merkja staðinn og vara vegfarendur við en ljóst er að nauðsynlegt er að aka varlega á öllu þessu svæði því jarðskjálftar halda áfram að koma. 


Vegagerðin mun halda áfram að vakta vegakerfið sérstaklega á þessu svæði.

Fylgist með á heimasíðunni eða á Twitter Vegagerðarinnar. 

https://twitter.com/Vegagerdin/

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024