Sprunga myndaðist í gólfið
Gott að eiga húsaskjól í Fljótshlíðinni
Einar Dagbjartsson, flugstjóri og strandveiðihetja, var á sjónum í gær þegar ballið byrjaði og fór með aldraða móður sína úr íbúð hennar á elliheimilinu í Víðihlíð, í aðra hlíð, Fljótshlíð en þar er hann með sumarbústað.
„Ég var staddur suðvestan við Grindavík í fínu fiskerýi á Grindjána þegar ballið byrjaði og dreif mig í land þegar ég sá hvað stefndi í. Það var skrýtið að landa um hálfsjöleytið, þessir skjálftar voru á allt annarri stærðargráðu en við höfum vanist að undanförnu. Ég dreif mig heim, fór í sturtu og svo í mat til frænku minnar og þar var móðir mín en fljótlega ákváðum við að það væri ekki mikið vit í að vera í Grindavík og ákváðum að fara í sumarbústaðinn minn í Múlakoti í Fljótshlíðinni. Við komum við heima hjá mömmu á elliheimilinu og það var ekki falleg aðkoma. Það hafði myndast sprunga í gólfið, veggirnir gliðnuðu og það var mikið hrunið úr hillum. Við tókum það helsta sem mömmu vantaði og drifum okkur svo. Það var gott að koma í Múlakot og vera örugg. Það hefur verið æðislegt að finna fyrir samhug vina og ættmenna, við mamma getum verið hjá mínum börnum á höfuðborgarsvæðinu en ég er ekki að fljúga fyrr en eftir viku svo ég held við verðum hér til að byrja með. Nú er ég fara bjóða okkur mömmu upp á upphitaðan hrygg, það verður veisla. Það er ekkert annað að gera en taka æðruleyisbænina á þetta, hún svínvirkar núna. Vonandi fer svo bara að gjósa fljótt og á stað sem ógnar ekki neinu, best væri ef eldgosið myndi renna í Hópsnesið og búa til betri hafnaraðstöðu, það er best að vera lausnarmiðaður,“ sagði Einar.
