Sprengt í Helguvík
Í dag var sprengjudagur í Helguvík þegar sprengt var úr klöppinni sem verið er að moka í burtu, en um 8.500 tonn af grjóti losnuðu við sprenginguna. Öllum jarðvinnutækjum var keyrt í öruggt skjól áður en sprengingin varð og bókstaflega nötraði jörðin þegar jörðin brast. Strax verður hafist handa við að fjarlægja grjótið sem sprengt var.
VF-ljósmynd/Jóhannes Kr. Kristjánsson: Sprengikrafturinn var gríðarlegur þegar 8.500 tonn af grjóti losnuðu í Helguvík í dag.