VF jólalukka 25
VF jólalukka 25

Fréttir

Þriðjudagur 29. maí 2001 kl. 14:31

„Sprengjuþotan“ í loftið síðdegis

Samkvæmt heimasíðu United Airlines er áætlað að Boing 747 vél félagsins, sem millilenti í Keflavík í gær vegna sprengjuhótunar, fari í loftið klukkan 17:30. Visir.is greindi frá.
Ekkert kemur fram á síðunni um ástæðu tafarinnar, en AP fréttastofan segir frá því í frétt í dag að skrifað hafi verið á spegil á snyrtingu vélarinnar Bomb. 1021 og að lögreglan hér á landi hafi skilið það sem svo að með þessu væri verið að hóta spreningu klukkan 10:21 að austurstrandartíma í Bandaríkjunum.
Það er klukkan 14:21 að íslenskum tíma. Vélin lenti í gær klukkan 14:30.
Nú er áætlað að hún fari í loftið klukkan hálfsex og að hún lendi í Chicago kl. 16:54 að staðartíma, um sólarhring á eftir áætlun.
Fram kom á Stöð 2 í gær að áhöfn vélarinnar hafi neitað að halda ferðinni áfram fyrr en gertækri leit í vélinni væri lokið. Í frétt AP er haft eftir talsmanni United að flugstjórinn hafi ákveðið að sú leit færi fram áður en lengra yrði haldið.
Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk
VF jól 25
VF jól 25