Sprengjumaðurinn handtekinn í Reykjanesbæ
Karlmaður á áttræðisaldri hefur játað að hafa komið sprengju fyrir skammt frá Stjórnarráði Íslands fyrir tæpum tveimur vikum. Maðurinn var einn að verki. Karlmaðurinn er búsettur í Reykjanesbæ en lögreglan á Suðurnesjum handtók hann í gær. Málið telst upplýst og hefur manninum verið sleppt úr haldi.
Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að maðurinn vildi ekki valda skaða heldur koma ákveðnum skilaboðum á framfæri við stjórnvöld. Maðurinn stóð við hlið sprengjunnar þegar hún sprakk. Við húsleit á heimili hans var lagt hald á ýmsan búnað svo og bíl hans.