Sprautað úr slökkvitækjum í yfirgefnu fjölbýlishúsi
Um hádegisbilið í gær var tilkynnt til lögreglu um miklar skemmdir í einni af blokkunum á Keilisbraut á Vallarheiði, sem ekki er búið í. Þar hafði verið farið um alla blokkina og sprautað úr slökkvitækjum og talsverðar skemmdir unnar á innanstokksmunum.
Þeir sem hafa orðið varir við grunsamlegar mannaferðir við byggingu 762 eru hvattir til að láta lögregluna á Suðurnesjum vita.
Ljósmynd: Frá Vallarheiði. Húsin á myndinni tengjast ekki efni fréttarinnar.