SpKef hagnast um hálfan milljarð króna

Minnkun hagnaðar á milli ára má að mestu rekja til minni gengishagnaðar.
Helstu niðurstöður úr rekstri og efnahag
• Hagnaður Sparisjóðsins í Keflavík árið 2004 nam 508,9 m.kr. króna fyrir skatta samanborið við 738,2 m. kr. árið 2003.
• Hagnaður eftir skatta nam 408,6 m. kr. samanborið við 604,1 m. kr. árið 2003.
• Arðsemi eigin fjár var 17,3%.
• Vaxtatekjur Sparisjóðsins námu 1.902,2 m.kr. en það er 4,1% hækkun frá árinu 2003.
• Vaxtagjöld hækkuðu einnig, eða um 2,3% og námu 1.131,8 m.kr. árið 2004
• Hreinar vaxtatekjur námu því 770,5 m.kr. samanborið við 721,0 m.kr. árið 2003 sem er hækkun um 6,9%.
• Vaxtamunur, þ.e. hreinar vaxtatekjur í hlutfalli af meðalstöðu fjármagns var 3,3% árið 2004 en 3,77% árið 2003.
• Aðrar rekstrartekjur lækkuðu um 228,3 m. kr. og voru 884,6 m.kr. árið 2004. Munar þar mest um lækkun á gengishagnaði upp á 206,5 m.kr.
• Önnur rekstrargjöld námu alls 829,7 m.kr. og jukust um 3,0% frá árinu áður. Laun og launatengd gjöld jukust um 1,9% og þar af voru bein laun 77%. Annar almennur rekstrarkostnaður jókst um 6,0%. Rekstrarkostnaður sem hlutfall af niðurstöðu efnahagsreiknings var 3,2% en var um 4% árið 2003.
• Kostnaðarhlutfall árið 2004 var 50,1% á móti 43,9% árið 2003.
• Framlag í afskriftareikning útlána var 316,4 m.kr. en var 290,0 m.kr. árið 2003. Sem hlutfall af niðurstöðu efnahagsreiknings var framlagið 1,2% en var 1,45% árið 2003.
• Afskriftareikningur útlána nam í árslok 2,19% af útlánum en var 2,04% árið áður.
• Heildarinnlán í Sparisjóðnum ásamt lántöku námu í lok árins 2004 18.824 m.kr. og er aukningin 20,7% á milli ára.
• Útlán Sparisjóðsins ásamt markaðsskuldabréfum námu 21.082,3 m.kr. í lok ársins 2004 og höfðu aukist um 4.631,1 m.kr. eða um 28,2%.
• Í lok ársins var niðurstöðutala efnahagsreiknings 26.310,9 m.kr. og hafði hún hækkað um 6.318,2 m.kr. eða 31,6%. Eigið fé Sparisjóðsins í lok ársins 2004 nam 2.682,1 m.kr. og hefur eigið fé aukist um 323,2 m.kr. eða 13,7%. Eiginfjárhlutfall Sparisjóðsins samkvæmt CAD-reglum er 12,56% en var 14,95% á sama tíma árið áður.
• Áætlanir fyrir árið 2005 gera ekki ráð fyrir eins góðri afkomu og árið 2004 og skýrist það einkum af þeim gengishagnaði sem varð af annarri fjármálastarfsemi árið 2004.
• Í lok árins 2004 var stofnfé 600 milljónir og voru stofnfjáraðilar 554 talsins.
• Við gerð þessa ársreiknings er í meginatriðum fylgt sömu reikningsskilaaðferðum og árið áður.
Sparisjóðurinn í Keflavík var stofnaður 1907 og hefur því þjónað Suðurnesjamönnum í 96 ár. Sparisjóðurinn rekur fimm afgreiðslur sem starfræktar eru í Keflavík, Njarðvík, Garði, Grindavík og Vogum. Höfuðstöðvar Sparisjóðsins eru í Keflavík og þar er Viðskiptastofa SPKEF einnig til húsa. Meðalfjöldi starfsmanna árið 2004 var 74,35 sem er aukning um 2 stöðugildi frá því árinu áður
Aðalfundur Sparisjóðsins í Keflavík verður haldinn þriðjudaginn 15. mars n.k. Stjórn sjóðsins leggur til að greiddur verði 7,5% arður á uppreiknað stofnfé. Auk þess sem nýttar verði heimildir laga um endurmat og viðbótarendurmat þannig að nafnávöxtun stofnfjár verði 16,41%.