Spennandi dagskrá á Safnahelgi
- Viðburðir í öllum sveitarfélögum á Suðurnesjum
Söfn á Suðurnesjum hafa tekið höndum saman um að bjóða í níunda sinn upp á sameiginlega dagskrá um næstu helgi, 11. til 12. mars. „Markmiðið hefur frá fyrstu tíð verið að kynna fyrir landsmönnum hin fjölbreyttu söfn og sýningar sem sveitarfélögin á Suðurnesjum bjóða upp á. Þetta er liður í menningarferðaþjónustu svæðisins og upplagt fyrir íbúa næsta nágrennis, svo sem á höfuðborgarsvæðinu, að renna í bíltúr hingað suður eftir um helgina og upplifa eitthvað af því fjölmarga sem hér verður í boði,“ segir Valgerður Guðmundsdóttir, menningarfulltrúi Reykjanesbæjar sem umsjón hefur með Safnahelginni.
Á dagskránni eru alls kyns sýningar, tónleikar, fyrirlestrar og margs konar uppákomur. Þá mun list- og handverksfólk einnig vera með sölu á munum sínum. Söfn, safnvísar og sýningar nálgast annan tuginn og segir Valgerður fjölbreytni safnanna í raun einstaka á ekki stærra svæði. „Fólk getur kynnst sögunni frá því fyrir landnám og til okkar tíma, margvíslegum atvinnuháttum, listum og náttúru,“ segir hún. Sjósókn og vinnsla sjávaraflans verður kynnt á þremur söfnum í þremur mismunandi bæjarfélögum; Kvikunni í Grindavík, Byggðasafninu í Garði og Bátasafninu í Duus Safnahúsum.
Náttúran er áberandi í Þekkingarsetri Suðurnesja og í Gestastofu Reykjaness jarðvangsins í Duus Safnahúsum en í Duus Safnahúsum eru átta sýningarsalir með fjölbreyttum sýningum um sögu, listir og náttúru. Óhætt er líka að nefna Slökkviliðsminjasafn Íslands í Safnamiðstöðinni í Ramma og sýningu Björgvins Halldórssonar á Rokksafninu í Hljómahöllinni. Söguganga um Bítlabæinn Keflavík verður farin á vegum Bókasafns Reykjanesbæjar og Pokemon sýning verður á Bókasafni Sandgerðis. Tvö einkasöfn verða opin almenningi í Garðinum af þessu tilefni og tvær ljósmyndasýningar í Vogunum. Menningarvika Grindavíkur hefst þessa sömu helgi og þar verður fjöldi viðburða og sýninga í gangi um allan bæ. Þar má meðal annars nefna Guðbergsstofu og Jarðorkusýninguna í Kvikunni og listsýningar á Bókasafninu, Salthúsinu og á fleiri stöðum.
Íbúar Suðurnesja eru að sjálfsögðu líka hvattir til að koma á Safnahelgina og endilega að taka með sér gesti. Ókeypis verður inn á öll söfnin um Safnahelgi og á þá viðburði sem á dagskránni verða nema annað sé tekið fram. Sveitarfélögin fimm á Suðurnesjum hafa unnið sameiginlega að undirbúningi dagskrárinnar og er verkefnið stutt af Uppbyggingarsjóði Suðurnesja. Sjá má alla dagskrána á safnahelgi.is.