Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Spellvirki unnin á Keflavíkurvelli
Miðvikudagur 14. júlí 2004 kl. 10:56

Spellvirki unnin á Keflavíkurvelli

Ljót sjón blasti við á fótboltavellinum í Keflavík þegar starfsmenn mætti þar til vinnu í morgun.

Glænýtt varamannaskýli hafði verið lagt í rúst og brotin lágu á víð og dreif allt um kring. Þegar ljósmyndari Víkurfrétta kom á vettvang hafi skýlinu verið tjaslað saman en þó sá stórlega á því.

Ljóst er að einhverjir hafa gert sér að leik að skemma skýlið og verður eflaust dýrt að gera við það.

Keflavíkurliðið var við æfingar á vellinum til kl. 8 í gærkvöldi og hafa spellvirkjarnir látið til skarar skríða í skjóli nætur og ekki látið leiðindaveðrið stöðva sig.

Þeir sem hafa orðið varir við mannaferðir á vellinum í gærkvöldi eða nótt eru beðnir um að hafa samband við framkvæmdastjóra Keflavíkur í síma 894-3900.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024