Sparisjóðurinn styrkir körfuna í Njarðvík
Sparisjóðurinn í Keflavík undirritaði styrktarsamning við körfuknattleiksdeild UMFN fyrir næstu tvö keppnistímabil sl. miðvikudag.Samningurinn felur meðal annars í sér að Sparisjóðurinn kosti merkingar á búningum liðsins og styrki einnig unglingastarfið. Geimundur Kristinsson, sparisjóðsstjóri og Alexander Ragnarsson, formaður körfuknattleiksdeildar UMFN, undirrituðu samninginn.