HSS
HSS

Fréttir

Sparisjóðurinn styður knattspyrnuna
Fimmtudagur 7. ágúst 2003 kl. 15:47

Sparisjóðurinn styður knattspyrnuna

Sparisjóðurinn í Keflavík og Knattspyrnudeild Keflavíkur hafa gert með sér nýjan samstarfssamning. Keflavíkurliðið leikur með auglýsingu frá SpKef á keppnistreyjum liðsins. Sparisjóðurinn hefur verið aðalstyrktaraðili Keflavíkurliðsins undanfarin ár og undirrituðu Geirmundur Kristinsson sparisjóðsstjóri og Rúnar Arnarsson formaður deildarinnar samning til næstu fjögurra ára.“Það er deildinni mikill stuðningur að fyrirtæki eins og Sparisjóðurinn leggi okkur lið og sé mikilvægur þáttur í störfum okkar og erum við þeim þakklátir,” sagði Rúnar við þetta tilefni. “Það skiptir Sparisjóðinn líka miklu máli að geta lagt lið í æskulýðs og íþróttastarfsemi í Reykjanesbæ og vona ég að í haust verði Keflavík komið upp í úrvalsdeildina,” sagði Geirmundur við undirskriftina.

Myndin: Frá undirritun samningsins. VF-mynd: Hilmar Bragi Bárðarson
Bílakjarninn
Bílakjarninn