Sparisjóðurinn í Keflavík tekur að sér eignastýringu fyrir Lífeyrissjóð Suðurnesja

Geirmundur Kristinsson, sparisjóðsstjóri og Friðjón Einarsson, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðsins undirrituðu samnninginn sl. föstudag. Geirmundur greindi frá því að Sparisjóðurinn í Keflavík hefði starfrækt viðskiptastofu í um 5 ár, sem hefur sinnt þjónustu á sviði verðbréfa fyrir viðskiptavini á starfsvæði sínu. Með samstarfinu við lífeyrissjóðinn muni starfsgrundvöllur Viðskiptastofunnnar styrkjast enn frekar.
Friðjón taldi að þessi samningur væri mikil viðurkenning fyrir Viðskiptastofu Sparisjóðsins því mikið væri í húfi fyrir Lífeyrissjóð Suðurnesja að vel takist til með ávöxtun fjármuna sjóðsins. Samningurinn kemur einnig vel út fyrir Suðurnesin þar sem hann m.a. tryggir verkefni fyrir háskólamenntað fólk og styrkir báðar stofnanir til framtíðar.