Bygg
Bygg

Fréttir

Sparisjóðsfólk er hrætt um framtíðina
Mánudagur 14. mars 2011 kl. 11:22

Sparisjóðsfólk er hrætt um framtíðina

Almennir starfsmenn Sparisjóðsins í Keflavík eru bæði sorgmæddir og reiðir, að sögn séra Erlu Guðmundsdóttur, sóknarprests í Keflavíkurkirkju, í viðtali við DV í dag. Starfsmenn sparisjóðsins, sem var sameinaður Landsbankanum í síðustu viku, leituðu til Erlu og báðu hana um aðstoð en flestir þeirra urðu fyrir miklu tilfinningalegu áfalli.

Í DV segir að starfsmönnunum gramdist það sérstaklega að þeir voru ekki látnir vita af sameiningunni við Landsbankann, heldur þurftu þeir að lesa um málið í netheimum um þar síðustu helgi. Þegar starfsmenn sparisjóðsins fóru heim úr vinnu sinni föstudaginn 4. mars vissu þeir ekkert af fyrirhugaðri sameiningu. Eftir helgi, mánudaginn 7. mars, voru þeir hins vegar orðnir starfsmenn Landsbankans.

Á fimmtudaginn birti Landsbankinn í Keflavík, áður SpKef Sparisjóður, fréttatilkynningu þess efnis að enginn starfsmanna gamla sparisjóðsins ætti á hættu að verða sagt upp. Starfsmönnunum fannst hins vegar litla huggun vera að finna í þeirri tilkynningu. Þeir eru óvissir um framtíðina, sérstaklega í ljósi þess með hvaða hætti þeir fréttu af samruna sparisjóðsins og Landsbankans.

„Fólk er hrætt um framtíðina, það er ekkert leyndarmál. Okkar litla samfélag hérna á Reykjanesi hefur þurft að þola margt á síðustu árum. Nú þurfum við að horfa upp á aldargamla stofnun hverfa og vitanlega eru starfsmennirnir fullir efasemda um framtíðina,“ segir Erla Guðmundsdóttir í DV í dag.

Bílakjarninn
Bílakjarninn