Fréttir

  • Spara 68% orku með nýrri lýsingu í Reykjaneshöll
    Meinert Jóhannes Nilssen kveikti á nýju lýsingunni í morgun. VF-myndir: hilmarbragi
  • Spara 68% orku með nýrri lýsingu í Reykjaneshöll
    Mun bjartara er í Reykjaneshöll og lýsingin jafnari í öllum salnum.
Föstudagur 7. október 2016 kl. 10:49

Spara 68% orku með nýrri lýsingu í Reykjaneshöll

Reykjaneshöll mun spara um 68% af þeirri raforku sem höllin keypti áður og notaði í raflýsingu í húsinu. Nú hefur eldri lýsingu verið skipt út og í stað hennar sett upp LED-lýsing í Reykjaneshöllina. Nýja lýsingin notar notar aðeins um þriðjung af  því rafmagni sem áður þurfti og því mun stofnkostnaður vegna nýju ljósanna borga sig á fjórum árum.
 
Það var Meinert Jóhannes Nilssen, 94 ára göngugarpur, sem kveikti formlega á nýju ljósunum í Reykjaneshöll í morgun eftir að gönguhópur eldri borgara hafði tekið morgunhringina sína í Reykjaneshöllinni.
 
Þeir sem þekkja til í Reykjaneshöllinni sjá að nýja lýsingin er mun betri en sú sem hefur verið skipt út og hefur verið frá því Reykjaneshöll opnaði árið 2000. Mun bjartara er í húsinu og lýsingin jafnari en áður.
 
Fleiri mannvirki Reykjanesbæjar verða LED-lýst á næstunni. T.a.m. verður kveikt á nýrri LED-lýsingu Ljónagryfjunni í Íþróttahúsi Njarðvíkur í kvöld.
 
 
Meinert og Kjartan Már bæjarstjóri.
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024