Fréttir

Sóttvarnalæknir segir mikilvægt að ráða bót á mengun
Þriðjudagur 28. mars 2017 kl. 15:31

Sóttvarnalæknir segir mikilvægt að ráða bót á mengun

Taldar eru mjög litlar líkur á að arsenmengun undanfarna mánuði á Suðurnesjum muni valda alvarlegum heilsuspillandi áhrifum eins og krabbameini hjá íbúum í nágrenni kísilverksmiðju United Silicon. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Sóttvarnalækni. Þar segir jafnframt að haldi mengunin áfram til nokkurra ára í svipuðu eða meira magni en nú er, megi búast við auknum líkum á heilsuspillandi áhrifum þó að ekki sé hægt að segja með vissu hversu mikil sú aukna áhætta er. „Til lengri tíma litið er því mikilvægt að ráðin verði bót á menguninni þannig að íbúar þurfi ekki að búa við þá óvissu að heilsu þeirra sé ógnað,“ segir í tilkynningunni.

Hafin var starfsemi í kísilverksmiðju United Silicon í Helguvík í nóvember síðastliðnum og undanfarna fimm mánuði hefur styrkur arsens í andrúmslofti í nágrenni verksmiðjunnar mælst á bilinu 6 til 7 ng/m3 en umhverfismörk miða við að ársmeðaltal sé 6 ng/m3.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Stjórnskipuð nefnd um sóttvarnir fundaði í gær um það hvort og hversu mikil heilsufarsleg áhrif megi búast við að sjá af völdum mengunarinnar hjá íbúum í nágrenni við kísilverksmiðjuna. Samstarfsnefnd um sóttvarnir er skipuð sóttvarnalækni, fulltrúum Umhverfisstofnunar, Matvælastofnununar og Geislavarna ríkisins. Til fundarins voru einnig boðaðir yfirlæknir Vinnueftirlitsins og sérfræðingur í eiturefnafræði við Háskóla Íslands.

Niðurstaða fundarins í gær var að þegar litið er til niðurstaðna erlendra rannsókna og leiðbeininga alþjóðlegra stofnana þá megi álykta að styrkur arsens í nágrenni kísilverksmiðjunnar í Helguvík sé langt undir þeim mörkum sem talin eru valda bráðum alvarlegum heilsuspillandi áhrifum. Þá segir í tilkynningunni að sá tími sem mengunin hafi staðið sé stuttur og verulega undir þeim tíma sem tekur að auka áhættu á langtíma áhrifum.