Sóttu vélarvana við Eldey
Í gærkvöldi, föstudagskvöld, barst beiðni frá 6 tonna bát sem staddur var suð-vestan við Eldey, um aðstoð vegna vélarvandræða. Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Oddur V Gíslason í Grindavík var ræst út og hélt úr höfn með 5 manna áhöfn, rétt fyrir miðnætti til móts við bátinn.
Oddur V var kominn að bátnum rétt fyrir klukkan 2 í nótt, og með aðstoð áhafnar Odds V tókst að koma vél bátsins í gang og sigldi hann þá fyrir eigin vélarafli. Oddur V fylgdi honum áleiðs, en stefnan var tekin til Grindavíkur.
Klukkan 3 í nótt drapst aftur á vél bátsins, og var þá ákveðið að taka hann í tog. Það verkefni gekk vel, en siglingin inn til Grindavíkur tók dágóða stund.
Oddur V kom til hafnar í Grindavík klukkan rétt rúmlega 7 í morgun með bátinn í togi.