Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Sóttu sjúkling í skemmtiferðaskip djúpt undan Garðskaga
Fimmtudagur 13. október 2022 kl. 16:00

Sóttu sjúkling í skemmtiferðaskip djúpt undan Garðskaga

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar fór í langt sjúkraflug á haf út fyrr í vikunni vegna bráðra veikinda um borð í skemmtiferðaskipi. Áhöfnin á TF-GRO var kölluð út á fimmta tímanum vegna veikindanna sem voru um borði í farþegaskipinu Ambience sem statt var um 160 sjómílur út af Garðskaga.

Þegar þyrlan nálgaðist skipið var skipstjóra þess gefnar leiðbeiningar um stjórntök og hraða vegna hífingarinnar frá skipinu. Skipið var beðið um að beygja upp í vind og hægja ferðina niður í sex hnúta ferð.

Sigmaður og læknir þyrlunnar fór um borð í skipið við bakborðshorn þess eftir að tengilínu var slakað niður. Þegar um borð var komið var hugað að sjúklingnum og hann undirbúinn fyrir hífingu um borð í þyrluna.

Þegar búið var að búa um sjúklinginn var tekið á móti króknum, læknirinn hélt fyrstur upp og því næst var sjúklingurinn hífður upp í börunum. Sigmaður þyrlunnar fór síðastur upp með farangur sjúklingsins.

Að hífingum loknum var áhöfn skipsins þakkað fyrir samstarfið og haldið til Reykjavíkur. Skipstjóri skemmtiferðaskipsins hafði sérstaklega orð á hve hratt verkefnið gekk fyrir sig og þakkaði þyrlusveit Landhelgisgæslunnar innilega fyrir snör viðbrögð.

Meðfylgjandi myndband er á fésbók Landhelgisgæslunnar og sýnir hvernig verkefnið gekk fyrir sig á þriðjudag.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024