Sorgarhópur stofnaður í Grindavíkurkirkju
Sorgarhópur hefur göngu sína í Grindavíkurkirkju næstkomandi þriðjudag, 30. janúar, kl. 20. Sorgarhópur er stuðningshópur fólks sem misst hefur náinn ástvin, en þetta kemur fram á heimasíðu Grindavíkur.
Í hópavinnunni gefst kostur á að vinna úr tilfinningum sínum og reynslu með umræðu og gagnkvæmum stuðningi.
Samverustundirnar í kirkjunni verða á þriðjudögum frá kl. 20 til 21:30 og stendur yfir í sjö vikur.
Upplýsingar um skráningu gefur Sr. Elínborg Gísladóttir í síma 696-3684 eða á [email protected]