Bygg
Bygg

Fréttir

Söng- og leiklistarstarf fyrir börn
Sunnudagur 15. nóvember 2015 kl. 21:49

Söng- og leiklistarstarf fyrir börn

-söngur, gleði og kraftur í Keflavíkurkirkju

Söngur, gleði og kraftur!!

Skapandi starf í söng og leik fer af stað í Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 17. nóvember næstkomandi. Starfið fer fram í Kirkjulundi á þriðjudögum kl. 18-19:15 og er ætlað börnum í 3.- 7. bekk.
Leiðbeinendur eru Freydís Kneif Kolbeinsdóttir og Íris Dröfn Halldórsdóttir. Auk þess að vera með langa reynslu af að starfa með börnum sem grunnskólakennarar hafa þær verið virkar í söng- og leiklistarstarfi með börnum og ungmennum í mörg ár. Keflavíkurkirkja fékk að njóta krafta þeirra við uppsetningu á söngleiknum “Líf og friður” nú á vordögum sem fékk gífurlega góðar viðtökur samfélagsins.

Bílakjarninn
Bílakjarninn


Þátttökugjald er 12.000 kr fyrir veturinn (fram í maí).
Skráning fer fram á netfanginu [email protected].
Taka þarf fram nafn og aldur barns, nöfn, netföng og símanúmer foreldra.