Sólríkur dagur framundan
Klukkan 6 var norðlæg eða breytileg átt, víða 3-8 m/s og bjartviðri, en yfirleitt skýjað með köflum austantil. Hiti 3 til 12 stig, svalast við austurströndina, en hlýjast suðvestanlands.
Norðlæg eða breytileg átt, víða 3-8 m/s og bjartviðri, en skýjað með köflum norðan- og austanlands í dag. Dálítil súld eða rigning af og til suðaustan- og austantil seint í kvöld, en víða á morgun, þó úrkomulítið um landið vestanvert. Hiti yfirleitt 12 til 20 stig að deginum, hlýjast suðvestan- og vestanlands, en 10 til 15 á morgun.