Sóley dregin til Siglufjarðar
Nesfisktogarinn Sóley Sigurjóns GK var dregin til Siglufjarðar eftir að ekki tókst að koma aðalvél skipsins í gang eftir eldsvoða í vélarrými skipsins í gær. Það var grindvíska línuskipið Tómas Þorvaldsson GK sem dró Sóleyju til Siglufjarðar.
Rétt fyrir hádegi í gær barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar tilkynning frá togaranum Sóleyju Sigurjóns GK um að mikill reykur og hiti væri í vélarrými togarans og hugsanlegur eldur. Togarinn, sem er tæplega 800 tonn að stærð og um 45 metrar á lengd, var staddur um 25 sjómílur norðvestur úr Sauðanesi við rækjuveiðar. Um borð voru átta skipverjar.