Fréttir

Sóknarfærin eru á landsbyggðinni
Frá mannamótum á Reykjavíkurflugvelli í fyrra.
Miðvikudagur 11. janúar 2017 kl. 09:25

Sóknarfærin eru á landsbyggðinni

- 15 Suðurnesjafyrirtæki taka þátt í Mannamótum markaðsstofanna 2017 á Reykjavíkurflugvelli

Markaðsstofur landshlutanna standa fyrir ferðasýningunni Mannamót 2017 fimmtudaginn 19. janúar í Reykjavík. Tilgangurinn er að auka dreifingu ferðamanna um landið allt með því að mynda og efla tengsl á milli ferðaþjónustufyrirtækja á Íslandi en þrátt fyrir fjölgun ferðamanna til landsins á seinni árum eru enn mörg ónýtt sóknarfæri á landsbyggðinni og ferðaþjónustan þar í stakk búin að taka á móti fleiri gestum. Fimmtán fyrirtæki á Suðurnesjum hafa skráð sig til leiks á ferðasýninguna.

Þetta er í fjórða sinn sem markaðsstofurnar taka höndum saman og setja upp viðburðinn Mannamót fyrir samstarfsfyrirtæki sín. Tilgangurinn er að kynna ferðaþjónustufyrirtæki á landsbyggðinni fyrir ferðaþjónustuaðilum, ferðaskrifstofum og ferðaskipuleggjendum á höfuðborgarsvæðinu og markmiðið að vinna að dreifingu ferðamanna um landið allt og efla uppbyggingu heilsársferðaþjónustu úti á landi.

Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands og talskona Mannamóta, segir að tækifærin séu mörg í ferðaþjónustunni úti á landi og að hægt sé að taka á móti mun fleiri ferðamönnum en gert sé nú. „Það er óþarfi að hægja á straumi ferðamanna til landsins,” segir hún. „Það þarf bara að beina honum lengra út á landið.”

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024