Sögulegur atburður í bæjarstjórn Reykjanesbæjar
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar afgreiddi fjárhagsáætlun 2015-2018 á fundi sínum í gær. Sá sögulegi atburður gerðist að allir bæjarfulltrúar samþykktu fjárhagsáætlunina, enginn sat hjá og enginn greiddi atkvæði á móti. Það hefur ekki gerst áður í sögu Reykjanesbæjar.
„Í áætlunarvinnunni hefur ríkt góð samstaða innan bæjarstjórnar um helstu markmið og leiðir þótt auðvitað hafi orðið einhver ágreiningur um einstaka mál. Hann var þó ekki meiri en svo að allir bæjarfulltrúarnir sáu sér fært að samþykkja lokaútgáfu áætlunarinnar. Þetta er því afar ánægjuleg niðurstaða sem styrkir okkur í þeirri vinnu sem framundan er í Sókninni en markmið þeirrar vinnu er að ná skuldaviðmiði sveitarfélagsins undir 150% árið 2022“, segir Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar.