Söfnuðu 400 þúsund krónum fyrir matargjafir í Reykjanesbæ
Alls söfnuðust 10 milljónir í jólastyrkjasöfnun Krónunnar þetta árið, þá söfnuðu viðskiptavinir rúmlega 4,6 milljónum króna og lagði Krónan 5,4 milljón krónur á móti þeirri upphæð. Þessi upphæð var veitt í formi rúmlega 450 gjafakorta og Krónan afhenti Velferðarsviði Reykjanesbæjar tuttugu gjafakort á dögunum, hvert upp á 20 þúsund krónur en alls söfnuðu Kronan og viðskiptavinir 400 þúsund krónum í Reykjanesbæ. Gjafakortin eru afrakstur jólasöfnunar sem fram fór í verslunum Krónunnar á aðventunni, þar sem viðskiptavinum bauðst að styrkja hjálparsamtök í sínu nærsamfélagi sem sjá um matarúthlutanir í aðdraganda jóla.
Söfnunin fór þannig fram að viðskiptavinum bauðst að bæta 500 krónum við innkaupakörfuna í lokaskrefi greiðslu í verslunum Krónunnar, og myndi greiðslan renna til hjálparsamtaka í nærsamfélagi sem styðja þau sem þurfa á mataraðstoð að halda fyrir jólin. Styrkirnir í ár eru sem fyrr segir veittir í formi gjafakorta og styrkþegar velja því sjálfir sína matarkörfu.
Góðgerðarsamtökin sem hljóta styrk frá viðskiptavinum og Krónunni í ár eru Árnessýslusjóðurinn góði, Jólasjóður Fjarðabyggðar, Landakirkja í Vestmannaeyjum, Mæðrastyrksnefnd Akraness, Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar, Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Rauði kross Víkursvæðis, Selfosskirkja, Soroptimistafélag Mosfellsbæjar, Stórólfshvolfskirkja, Velferðarsjóður Eyjafjarðarsvæðis og Velferðarsvið Reykjanesbæjar.
Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, segir einstaklega ánægjulegt hvernig til tókst. „Jólastyrkjasöfnunin er okkur í Krónunni afar kær. Desember getur verið erfiður tími á mörgum heimilum, ekki síst á tímum verðbólgu og þrenginga. Þetta er í þriðja skipti sem við bjóðum viðskiptavinum að láta gott af sér leiða með þessum hætti og við trúum vart öðru en að gjafmildi þeirra muni létta undir á fjölmörgum heimilum fyrir jólin,“ segir Guðrún.