Sofnaði út frá daunillu samlokugrilli
Slökkvilið, sjúkrabíll og lögregla voru í morgun kölluð að íbúð í fjölbýlishúsinu að Hringbraut 136. Þar hafi húsráðandi í einni íbúðinni sofnað út frá samlokugrilli. Samlokan varð að rústum einum og brunalykt lagði um húsið. Betur fór en í fyrstu var óttast. Samlokugerðina þarf hins vegar að taka til endurskoðunar. VF-mynd: Hilmar Bragi Bárðarson