Sofnaði og ók utan í vegrið
Töluvert var um umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum undir og um síðustu helgi. Síðdegis í gær varð árekstur í Keflavík þegar bíl var ekið í veg fyrir annan. Ökumennirnir sluppu ómeiddir. Áður hafði annar ökumaður ekið út af á Vogavegi og kenndi hann meiðsla í öxl. Þá dottaði ökumaður sem var á leið eftir Reykjanesbraut til Reykjavíkur undir stýri og missti bílinn utan í vegrið. Fjarlægja þurfti bílinn með dráttarbíl og rúmlega 50 metrar af handriðinu lágu niðri eftir óhappið. Einnig var eitthvað um að ekið væri utan í eða á kyrrstæða mannlausa bíla.